Sigtún 3

Vel staðsett og virkilega skemmtilegt skrifstofurými miðsvæðis á Selfossi. Rýmið er á tveim hæðum og er samtals 125 fermetrar að stærð.

Á neðri hæð er anddyri, salerni, geymsla, eldhús, þrjár skrifstofur/fundarherbergi en efri hæðin er skemmtilega hannað opið rúmgott alrými, sem innréttað hefur verið í „gömlum stíl“. Báðar hæðirnar voru endurnýjaðar frá grunni fyrir nokkrum árum. 

Mjög vel staðsett á Selfossi, nokkur einkabílastæði beint fyrir utan og fleiri bílastæði í næsta nágrenni.  Um er að ræða sögufrægt hús á Selfossi, gjarnan nefnt Staður. Laust strax.

Nánari upplýsingar:
Sendið okkur tölvupóst: utleiga@landsbyggd.is

125 m²
125 m²
Skrifstofurými
Byggingarár 1935
Afhending: Laust strax