Verslunar- eða þjónusturými á besta stað í miðbæ Selfoss
Eyravegur 3-5
Til leigu er verslunar- eða þjónusturými á jarðhæð Eyravegar 3-5,í glæsilegri nýbyggingu í miðbæ Selfoss. Rýmið á jarðhæð er samtals um 550 m² að gólffleti og hentar vel undir eina stóra verslun eða tvær minni. Rýmið er opið og byggt á súlum sem býður upp á mikinn sveigjanleika í innréttingum. Stórir gluggar og aukin lofthæð, um 3 metrar, skapa bjart og aðlaðandi umhverfi. Jarðhæðin getur verið innréttuð eftir þörfum og kröfum leigutaka. Möguleiki er á að leigja rýmið í heild eða skipta því í tvær eða fleiri einingar, um 280 m² og um 220 m², hvora með eigin inngangi. Til viðbótar geta fylgt allt að 100 m² lagerrými í kjallara með aðgengi úr verslun og/eða stigagang
Nánari lýsing
Húsið er fjórar hæðir auk kjallara. Á jarðhæð verða verslanir en á efstu þremur hæðunum er íbúðahóteliðThe Amtmann Residence. Eins og önnur hús í nýjum miðbæ á Selfossi er Eyravegur 3-5 metnaðarfullt byggingarverkefni sem á sér fyrirmyndir í sögufrægum byggingum. Um er að ræða tvö hús, annað er gamla Hótel Akureyri, sem stóð á Akureyri og varð bruna að bráð, og hitt er svonefnt Amtmannshús sem stóð í miðbæ Reykjavíkur og var rifið.
Staðsetningin er frábær og sýnileiki er mikill. Húsið er vel sýnilegt fyrir akandi umferð frá Ölfusárbrú og við hliðina á húsunum eru tvö hótel með um 200 herbergjum, auk þess sem um 150 hótelherbergi til viðbótar eru væntanleg á næstu árum í miðbænum á Selfossi. Samtals eru um 300 bílastæði allt í kringum húsið, bílastæðahús öðru megin og nokkur skammtímastæði eru beint fyrir utan verslunina götumegin.
Eyravegur 3-5 er hluti af nýjum miðbæ Selfoss, sem hefur þegar sannað sig sem nýr áfangastaður og kennileiti. Miðbærinn byggir á sterkri sýn um staðaranda, mannlíf og varðveislu byggingarsögu Íslands. Þar er gott aðgengi, fjölbreytt þjónusta og afþreying í nærumhverfinu og næg bílastæði, meðal annars úrval verslana, veitingastaða og afþreyingar á borð við Mjólkurbúið mathöll og viðburðastaðinn Sviðið.
Nánari upplýsingar:
Sendið okkur tölvupóst: utleiga@landsbyggd.is







