Brúarstræti 12

Smjörhúsarnafnið er tilkomið frá upphafi 19. aldar, en þá var húsið – sem upprunalega stóð við Hafnarstræti 22 í Reykjavík – selt til danska stórfyrirtækisins Irma og var þá umbreytt í nýtískulegt verslunarhúsnæði sem seldi mjólkurvörur ýmiskonar. Var heitið málað stórum stöfum á framhliðina. Innandyra var verslunin fagurlega málað og búið glæsilegum innréttingum, ljósakrónum, vigtum, tunnum og hvers kyns búnaði. Eftirleiðis var Hafnarstræti 22 einatt kallað „Smjörhúsið.“

Húsið á sér þó mikla forsögu. Bjarni Sívertsen (1763-1833)  reisti húsið árið 1797 og var þar um árabil verslunarrekstur. Árið 1851 var hluta Sívertsenshúss umbreytt í skólabyggingu og enn síðar í gistiheimili fyrir námsfólk. Síðast á áttunda áratug 20. aldar var Bókabúð Braga Brynjólfssonar og verslunin Veiðimaðurinn til húsa í Hafnarstræti 22.

Hinn 7. nóvember 1977 birtist svo  á forsíðu Dagblaðsins eftirfarandi fyrirsögn: „Smjörhúsið víkur fyrir þriggja hæða stórhýsi.“ Mátti þar sjá hvernig eitt elsta hús bæjarins hafði, líkt og svo mörg önnur á þessum árum, fallið fyrir kúlu kranans. Í stað þess reistu Strætisvagnar Reykjavíkur nýja skiptistöð sem enn stendur við Lækjartorg.

34,1 m²
2021

Skoða fleiri eignir