Háaleitisbraut 68

Austurver að Háaleitisbraut 68 er rótgróið verslunar- og þjónustuhús á einstaklega miðlægum stað á höfuðborgarsvæðinu. Húsið var byggt árið 1964 og hefur í áratugi verið þekkt kennileiti í hverfinu. Þar er lítil og rótgróin verslunarmiðstöð á jarðhæð.

Stór hluti hússins hýsti um nær hálfrar aldar höfuðstöðvar Landsvirkjunar. Landsbyggð eignaðist árið 2025 þann hluta hússins, og hefur að auki fest kaup á fleiri eignarhlutum á jarðhæð. Með kaupunum skapaðist tækifæri til að endurhugsa og endurnýja stóran hluta þessarar rótgrónu fasteignar og laga hana að nýjum þörfum og starfsemi.

Nú standa yfir umfangsmiklar framkvæmdir og endurbætur á öllum hæðum eignarinnar. Markmiðið er að gefa húsinu nýtt líf með vönduðu og nútímalegu atvinnuhúsnæði, samhliða því að styrkja þá verslun og þjónustu sem fyrir er í Austurveri.

Staðsetning Austurvers er einn helsti styrkur eignarinnar. Frá húsinu eru greiðar leiðir í allar áttir höfuðborgarsvæðisins og húsið stendur mitt á milli rótgróinna íbúðahverfa, helstu atvinnusvæða borgarinnar og stærstu samgönguæða. Með endurbótunum er verið að byggja á sterkum grunni og skapa Austurveri nýtt hlutverk til framtíðar.

5.586 m²
1964

Skoða fleiri eignir