Aftur í Verkefni

Nýja Kvosin

  • Staða verkefnis

    Í vinnslu

  • Staðsetning

    Miðbær Reykjavíkur - Kvosin

  • Tegund

    Miðbæjaruppbygging

  • Nánari upplýsingar

    nyjakvosin.is

  • 25 Moorgate will provide approximately 80,000 square feet of Grade A workspace located on Moorgate, in the heart of the City of London. The building will benefit from outdoor terrace space from fifth to eighth floor and provide high quality ‘end of journey’ amenities. 25 Moorgate will be a highly sustainable, low-energy development with a focus on occupier well-being.

    Kvosin er hjarta Reykjavíkur og þar leynast einstök tækifæri. Með því að opna aðgengi að tveimur sögulegum byggingarreitum, tengja saman gönguleiðir og skapa ný skjólgóð almenningsrými getur Kvosin orðið enn sterkari miðpunktur borgarlífsins. 

    Landsbyggð og Eik fasteignafélag hafa tekið höndum saman um framtíðarsýn fyrir Kvosina í miðborg Reykjavíkur. Með samstarfinu er horft á byggingar og borgarrými á svæðinu sem eina heild og kannað hvernig hægt sé að tengja þau betur saman, styrkja gönguleiðir í gegnum Kvosina og skapa ný og skjólgóð almenningsrými.

    Kvosin er eitt söguríkasta svæði Reykjavíkur og einkennist af fjölbreyttri byggð sem hefur þróast með borginni í gegnum tíðina. Markmið samstarfsins er að byggja áfram á þeim sterka grunni, varðveita sérkenni og sögu staðarins en um leið skapa forsendur fyrir auknu mannlífi og fjölbreyttari starfsemi.

    Með því að hugsa svæðið sem eina heild skapast tækifæri til að styrkja samfellda göngutengingu frá Austurstræti, yfir Hafnarstræti og áfram að Tryggvagötu og höfninni. Hugmyndin er að ferðin í gegnum Kvosina verði hluti af upplifun miðborgarinnar sjálfrar, þar sem sögulegar byggingar, verslanir, veitingastaðir, þjónusta og ný almenningsrými fléttast saman.

    25 Moorgate will provide approximately 80,000 square feet of Grade A workspace located on Moorgate, in the heart of the City of London. The building will benefit from outdoor terrace space from fifth to eighth floor and provide high quality ‘end of journey’ amenities. 25 Moorgate will be a highly sustainable, low-energy development with a focus on occupier well-being.