Steinunn hefur yfirgripsmikla reynslu á sviði fjármála, reikninghalds og starfsemi fasteigna og þróunarfélaga.
Hún útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 2018. Áður hafði hún lokið námi sem viðurkenndur bókari og hefur þannig byggt upp traustan grunn í fjármálum og reikningshaldi.
Frá árinu 2010 hefur Steinunn starfað í fasteigna- og þróunargeiranum og öðlast víðtæka reynslu af rekstri fasteignafélaga. Hún starfaði hjá Reitum fasteignafélagi á árunum 2015–2025, fyrst á fjármálasviði og síðar sem viðskiptastjóri með áherslu á samskipti og samningagerð við leigutaka.