Friðjón er verkfræðingur að mennt, með M.Sc. í stjórnun framkvæmda frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) og B.Sc. í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Friðjón er með áratuga reynslu í þróun og rekstri fasteigna. Hann hefur gegnt fjölbreyttum lykilstöðum, þar á meðal sem framkvæmdastjóri þróunar hjá Reitum fasteignafélagi (2013-2024), sérfræðingur hjá Auði Capital (2009-2011) og forstöðumaður framkvæmda hjá Þyrpingu (2006-2009).

Friðjón hefur leitt undirbúning og framkvæmd fjölmargra stórra skipulags- og þróunarverkefna. Ber þar helst að nefna Kringlusvæðið, Orkureit í Laugardal, Korputún í Mosfellsbæ, Hyatt Centric hótel á Laugavegi 176, Borgartún 26 og Skuggahverfi.