Andri er byggingartæknifræðingur frá  Háskólanum í Reykjavík. Á árunum 2011-2022 starfaði Andri hjá Reitum fasteignafélagi, lengst af sem framkvæmdastjóri eignaumsýslusviðs. Árin 2023-2024 var Andri framkvæmdastjóri J.E Skjanna byggingaverktaka. 

Andri hefur yfirgripsmikla reynslu af því að vera í forsvari fyrir hönd verkkaupa við hönnun og framkvæmd vegna bygginga af fjölbreyttum toga, bæði á sviði nýbygginga og endurbóta, má þar nefna sem dæmi íbúðir, skrifstofur, verslanir, verslunarmiðstöðvar, hótel, spítala, heilsugæslur og vöruhús.